Særún lætur vaða
Skemmtilegt blogg
Myndaalbúm
Klukkan
05.05.2010 19:55:05 / særún

New York!!!

Jæja þá fer bara að koma að þessu, næstum fjögurra ára bið senn á enda og ferðin að verða að veruleika. Þegar ég kom úr leikskólastjóraferðinni til New York í október 2006 kom ég með þvílíkar stjörnur í augunum og gat ekki beðið eftir að komast aftur í þessa stórkostlegu stórborg. Sú bið er nú á enda og starfsmannahópurinn flýgur út seinniparts föstudags. Helginni verður vel varið í búðum og skoðunarferðum í borginni en seinni tvo dagana verða skólar heimsóttir og þá reynum við að læra sem mest af ameríkananum sem kann svo mikið í Dewey fræðunum sem við erum líka svo hrifnar af. Veðurspáin er agalega góð, sól og hiti svo nú eru hvítu buxurnar og önnur létt sumarföt á leið í töskurnar. Eitthvað bætist vonandi í fataskápana eftir ferðina og ipod og íþróttaskór eru á innkaupalistanum.
Í dag gat ég líka pantað mér sumarbústað og ég náði mér í hús í Meðallandinu. Ég og gamla settið ætlum okkur þangað í byrjun júlí í nokkra daga. Það verður ljúft að komast í sumarbústað í nokkra daga.
Þegar við komum aftur til starfa halda vorverkin áfram, sveitaferð, útskriftarferð og útskrift og í júní ætlum við í fullt af flakkaraferðum enda eru þær endalaust vinsælar og skemmtilegar.
Jájá það verður líka líf eftir NY þó maður sjái það ekki alveg fyrir núna... enda snýst ALLT um borgina og ferðina núna...

» 3 hafa sagt sína skoðun

12.04.2010 22:48:11 / særún

bara leti hér...

...þetta náttúrlega gengur ekki, hingað hef  ég ekki kíkt inn lengi og áttaði mig á að ég hef ekki skrifað í meira en mánuð. Tíminn gjörsamlega æðir áfram. Nú eru páskarnir búnir og sumardagurinn fyrsti handan við hornið. Þá fer nú aldeilis að vora og létta til og þá kemur líka að hinni margfrægu New York ferð sem hefur verið beðið eftir í tæp fjögur ár. Í dag eru 25 dagar í brottför og spennan og tilhlökkunin óbærileg. Í dag pöntuðum við nokkrar miða á Hárið sem við ætlum að sjá úti. Við á Hofi höfum alla tíð haldið upp á þennan söngleik og dönsum og syngjum við tónlistina í hverju partýi svo við gátum ekki annað en skellt okkur á miða. Svo á náttúrlega að kíkja í búðir, hanga á kaffihúsum og síðast en ekki síst að kíkja á leikskólana sem við erum búnar að fá til að skoða. Þetta verður voða gaman en ferðin er stutt og nauðsynlegt að átta sig á að tíminn er fljótur að líða og áður en við vitum af verðum við komnar heim aftur. Svo það er eins gott að njóta vel. Í vinnunni erum við líka alltaf að gera fullt af skemmtilegum hlutum, á morgun förum við með barnahópinn í Landhelgisgæsluna og fáum að skoða þyrlurnar og flugvélar gæslunnar. Á föstudaginn er elstu börnunum boðið á sinfóníutónleika og í næstu viku taka þau þátt í Barnamenningarhátíð og syngja á sviði Háskólabíós. Svo er Sigrún leikskólastjóri fimmtug í næstu viku og eitthvað þarf nú að djóka í henni, hún býður líka í afmæli svo það er gott starfsmannapartý svona til að hita upp fyrir ferðina.
Ég hafði það mjög gott um páskana, fór bara í Kjósina á páskadag enda frekar kalt og lítið við að vera þar. Það var því kærkomið frí og fínt að slappa af. Ég var passlega búin að ganga frá eftir málningarvinnuna en hér var málað um daginn og mikið verk að koma sér fyrir aftur, þrífa allt og ganga frá.
Nú er ég að taka mig á í ræktinni, er farin að hlaupa reglulega með samstarfskonu minni og ætla að bæta því við sem ég hef verið að gera í vetur svo þetta ætti að vera þokkaleg viðbót. Ég er strax farin að finna fyrir bætingu, gat hlaupið heilmikið á brettinu í dag en svo er nú takmarkið að hlaupa úti þegar veðrið leyfir, nenni samt alls ekki að berjast úti í roki og rigningu. Nú má svo bara vigtin fara að potast niður líka en til þess þarf maður kannski að taka matarræðið aðeins í gegn líka... það kemur.
Látum þetta duga í bili...

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.03.2010 23:19:36 / særún

er...

löngu búin að jafna mig á hálsbólgunni. Búið að vera nóg um að vera um helgina enda er ég mikið afmælisbarn og vil alltaf halda upp á afmælið mitt. Það er engin undantekning þar á þetta árið enda síðasta þrjátíuog... !!! Ætla að gleðja mitt samstarfsfólk með brauðum og snúðum og vona að þau taki því vel að fá ekki marengs en það er nú uppáhald flestra á Hofi... en við erum svo miklar matarkellingar að flest þykir gott. Svo er hefðbundið fjölskyldu og vinaboð hér annað kvöld. Þar sem ég er að vinna allan daginn og get ekki einu sinni hætt fyrr þennan dag þá er flest allt tilbúið sem gerir það að verkum að ég er soldið lúin eftir helgina. Við vorum líka í kertagerð í morgun svo það bættist ofaná að plampa í skúrnum í nokkra klukkutíma... en það er bara gaman! Ætla bara að hafa það rosalega gott og skemmtilegt í vinnunni á morgun... sem og alla aðra daga!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

» 4 hafa sagt sína skoðun

22.02.2010 18:21:28 / særún

Ligg heima í hálsbólgu...

... man bara ekki hvenær ég lá síðast. Sem betur fer verð ég ekki oft veik og get því legið heima með góðri samvisku, eða þannig. Það er svo sem ekki auðvelt að liggja heima þegar vantar 10 manns í vinnuna en það veit ég að allt reddast þetta hjá þeim kjarnakonum sem eftir eru. Ég náði nokkurnveginn að njóta helgarinnar þó hálsinn hafi verið orðinn aumur í gær. Árshátíð Léttsveitarinnar heppnaðist afar vel og allir skemmtu sér vel. Alla var ræðumaður kvöldsins og fór algjörlega á kostum þegar hún fékk sína góðu vinkonu Önnu Siggu og sinn fyrrverandi (ofsalega fyndið þegar hún sagði það) til að spila og syngja með sér. Þau mynda Bjargræðistríóið og eru alveg frábær. Í gær sungum við á hátíð Go Red samtakanna, það gekk vel en þá var hálsbólgan farin að segja til sín. Við mæðgur kíktum svo á bókamarkaðinn og þar sá ég aðallega fólk og nennti því ekki að grúska mikið þar. Mér sýnist á öllu að ég verði heima á morgun líka enda er hálsinn ægilega bólginn og mjög sárt að kyngja. Aðrir eru hressir og mamma ber í mig mat og lyf.

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.02.2010 19:19:55 / særún

er löt...

... við að blogga og þennan seinnipartinn er ég líka löt, enda búin að vera á fullu í allan dag, ekki að ég sé það ekki flesta daga en dagurinn í dag varð sérlega annasamur. Síðan ég kom hér inn síðast hefur fátt drifið á mina daga. Er þó búin að skreppa á tvenna tónleikas sem er náttúrlega eitt það skemmtilegasta sem ég geri. Fyrri tónleikarnir sem ég fór á voru stórglæsilegir tónleikar Lúðrasveitar Verkalýðsins, Söngsveitarinnar Fílharmóníu og kórs Fella og Hólakirkju. Þetta voru skemmtilegir tónleikar og óvenjulegir þar sem Lúðrasveit og kór koma ekki oft fram saman. Svo voru þetta algjörir fjölskyldutónleikar enda 6 manns sem komu þarna fram úr fjölskyldunni. Seinni tónleikarnir voruCarmína Burana með Sinfóníunni, ég fæ ekki leið á því verki og þessi uppsetning frábær. Bolludagurinn var tekinn með stæl, aldrei þessu vant var mér boðið í bollukaffi í Logafoldina á laugardaginn þar sem ég fékk flottasta bollukaffi sem ég hef fengið. Mér var líka boðið í bollur í Bogahlíðinni í gær og svo var mamma náttúrlega með bollur, í morgun setti ég svo súkkulaði á yfir 300 bollur svo þær leka út úr eyrunum að þessu sinni. Af öðrum er allt gott að frétta, gamla settið er við hestaheilsu og allir sprækir.

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.01.2010 20:43:27 / særún

hvað ætti svo sem að standa hér...

héðan er allt ágætt að frétta en það er nú bara af því að engar fréttir eru góðar fréttir. Hér er ekkert sérstakt um að vera enda daglega lífið fallið í rútínu á nýja árinu. Kórinn kominn af stað og nú gerist það sem ekki hefur oft gerst áður að sennilega verð ég ekki með á vortónleikum. Það eru bara áætlaðir einir tónleikar laugardaginn 8, maí en þá verð ég stödd ásamt Hofgyðjum úti í New York. Það er náttúrlega ekki leiðinlegt en ótrúlega súrt samt að verða ekki með í Háskólabíói en þar er áætlað að hafa tónleikana. Og bara einir tónleikar :( 
Leikhúslífið er stórskemmtilegt, við Inga sáum Faust um helgina og sú sýning er alveg mögnuð. Ótrúlega flott og glæsileg, tónlistin æðisleg og loftfimleikarnir svaka flottir. Við Dagný og mamma fórum líka í bíó í gærkvöldi þar sem við sáum Mömmu Gógó. Við Dagný eyddum heilum sunnudegi í fyrra í að leika í einu atriði þar svo við urðum að sjá myndina saman. Ekki þekktumst við nú í myndinni en við sáum okkur svona af því að við vissum hvar við sátum. En myndin er mjög góð og sýnir vel hversu hræðilegur Alzheimer sjúkdómurinn er.
Annars er eins og áður sagði ekkert sérstakt að frétta og fyrir ykkur sem viljið að ég fari út úr þægindahringnum þá veit ég bara ekkert til hvers ég ætti að fara út úr honum...

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.01.2010 19:08:32 / særún

Gleðilegt ár...

og takk fyrir gamla árið sem nú hefur kvatt og kemur aldrei aftur. Árið 2009 var ágætis ár þrátt fyrir allt og ég ætla að gera eins og Jóna Lind vinkona mín og setja saman smá annál
Janúar: Árið byrjaði óvenjulega hjá mér enda var ég í námsleyfi og átti því jólafrí nánast fyrstu vikuna á árinu. Námsefnið var þó fljótt að hrúgast inn og þá tók við lestur og meiri lestur. Kóræfingar hófust og nú tók við skemmtilegasta prógramm sem við höfum sungið en það var tileinkað íslensku sjómannskonunni og átti eftir að verða eftirminnilegt á ferlinum.
Febrúar: Endalaus lestur í skólanum og verkefnaskil var aðalefni mánaðarins,
Mars: er alltaf skemmtilegur enda á ég afmæli, eins og venjulega hélt ég fjölskyldu- og vinakaffi.
Apríl: Páskar og ferming Dagnýjar var aðalefni mánaðarins, verkefnaskil og kosningar, við í Léttsveitinni vissum reyndar lítið af þeim því löngu áður en kosningar komu til var búið að ákveða tónleika og æfingabúðir í Reykholti. Ég ásamt hluta af kórnum áttum skemmtilega helgi þar saman.
Maí: Skólinn kláraður og við tók þriggja vikna frí fram að vinnu. Ég tók heimilið í gegn, söng á ótrúlega skemmtilegum tónleikum Léttsveitarinnar í troðfullu Háskólabíói með Gylfa Ægis og Helenu. Fór til Akureyrar þar sem við Hrefna skemmtum okkur saman, æfðum okkur fyrir Hornstrandaferð og djömmuðum eins og smástelpur.
Júní: Byrjaði að vinna aftur, hafði samt lítinn tíma til þess, við mamma skelltum okkur í frábæra Berlínarferð og í lok mánaðar fór ég til Akureyrar og þaðan til Hornstranda í ógleymanlega göngu.
Júlí: Frábært sumarfrí, átti góða daga hjá Kristínu í Svarfaðardalnum, fór á Hellisand og í Hólminn og hafði það gott í góða veðrinu í Reykjavík
Ágúst: Vinna hafðist aftur og nú var ekkert frí framundan, ný og spennandi verkefni urðu þó til þess að tíminn flaug áfram og veturinn framundan bara spennandi.
September: Kóræfingar hófust eins og venjulega, við Inga keyptum okkur leikhúskort og ætlum að stunda leikhúsið af kappi í vetur, dreif mig líka af stað í ræktinni og er bara nokkuð dugleg þar
Október: Frábær sumarbústaðaferð með fjórum fögrum mögrum en ein sat veðurteppt fyrir vestan og var sárt saknað.
Nóvember: Jólaundirbúningurinn tekinn snemma, jólakort búin til og ýmis varningur fyrir handverksmarkað Hofgyðja útbúinn. Prjónaði tvær jólagjafir sem er saga til næsta bæjar en fyrstu peysuna prjónaði ég í haust.
Desember: Endalaus skemmtun, tónleikar, bæjarráp og alls konar samkomur tengdar jólum. Eyddi jólum og áramótum á hefðbundinn hátt og mestu rólegheitum.

Nú er bara höfuðverkur hvort maður eigi að halda sig í þægindahringnum enn eitt árið eða taka sig taki og ögra sjálfum sér á einhvern hátt... veit bara ekki hvað það ætti að vera en veit alveg hvað ég vildi sjá breytast þetta árið... ræð því bara ekki ein...


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.12.2009 16:39:56 / særún

Kæru vinir...

...Gleðileg jól, gott og farsælt komandi ár.

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.12.2009 22:25:51 / særún

11 dagar til jóla...

... eða eiginlega bara 10 því þessi er víst nánast búinn. Helgin alltof fljót að líða eins og venjulega og strax kominn mánudagur aftur. Vikan verður sjálfsagt líka fljót að líða og hún er meira að segja bara fjögurra daga hjá mér... alltso.. vinnuvikan því ég tek mér sumarfrí á föstudaginn. Það er ósköp gott að vera komin í jólafrí í kórnum en tónleikarnir heppnuðust hrikalega vel í gær, og reyndar líka á þriðjudaginn. Kristján skánaði en ekki er ég nú hrifin af honum og álit mitt óx ekkert  á þessum manni. En tónleikagestir voru yfir sig hrifnir, bæði af honum og okkur og þá eru allir glaðir. Partýið hjá Jóhönnu er orðinn fastur liður og bætir svolítið upp nýárspartýið sem var hjá Önnu Tryggva hér í denn, þið sem munið eftir því. Í kvöld lauk svo tónleikavertíðinni með Karlakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju og þá koma sko jólin, vá þeir eru svo flottir og sætir. Vantaði reyndar flotta bassann og helgu nóttina en flott var það samt.
Jólaundirbúningurinn er á fullu á heimilinu, ég finn mér alltaf nóg að gera og til dæmis ekki enn búin að búa til öll jólakortin, bakaði þrjár sortir af smákökum og læt það sennilega duga, bæti við skinkuhornum og bollum til að eiga með graflaxinum þegar nær dregur jólum. Jólagjafirnar eru fæstar komnar í hús en einhverjar bíða bara í búðinni eftir að vera sóttar og keyptar. Nokkrar er ég ekki enn búin að finna... og veit ekki hvar ég á að leita! Svo verð ég að fara að venja mig af því að fá hugmyndir um miðjan desember að jólagjöfum og föndri sem mig langar að búa til... eða búa þær til í janúar og geyma þær... veit ekki hvort það er sniðugt því ég fæ alltaf nýjar og nýjar hugmyndir.

Jæja best að kíkja á feisið fyrir nóttina og athuga hvað fólk er búið að gera í dag... þangað til næst ... njótið aðventunnar og munið að kvitta!!!

» 3 hafa sagt sína skoðun

04.12.2009 22:31:19 / særún

20 dagar til jóla

og tíminn flýgur áfram ... og hann teymir mig á eftir sér... Þessi jólamánuður líður alltaf svoooo hratt, nóg að gera á öllum vígstöðvum. Nú er jólagleðin búin og leynivinavikan líka, það er alltaf stemming í vinnunni þessa daga og mikil gleði. Fjáröflunin er líka tímafrek en sem betur fer skemmtileg ... svona oftast. Í gær var flotttur handverksmarkaður á Hofi sem gekk framar vonum. Foreldrar eru ótrúlega duglegir að styrkja okkur og eiga stóran þátt í að þetta gengur svona vel hjá okkur. Annað sem er um að vera hjá mér eru hefðbundnir jólatónleikar sem við syngjum á bæði á þriðjudag og laugardag. Það hentar mér nú ekki að hafa Kristján Jóhannsson með því ég hef ekki verið hrifin af honum en eftir æfinguna í gær, féll það litla álit sem eftir var, þvílíkur gosi, kann ekki það sem hann á að gera og kom illa undirbúinn, nær ekki tónum og þarf allskonar krúsídúllur inn í miðjum erindum til að allt gangi upp. Það verður gott að komast í jólafrí en það er því miður ekki fyrr en næsta laugardag. Um helgina ætlum við mæðgur að baka saman eins og við höfum gert fyrir hver jól í mörg mörg ár. Sjálf þarf ég svo að baka eitthvað smávegis en veit ekki alveg hvenær ég hef tíma til þess. Annars er þetta bara hefðbundin aðventa þar sem nóg er um að vera og mig langar alltaf að gera svo margt. Geri slatta og ekki meira en það.
Þangað til næst hafið það gott og endilega kvittið sem lesið, trúi ekki teljaranum hér inni sem segir að á milli 20 og 30 manns kíki hér inn daglega.

» 3 hafa sagt sína skoðun

05.11.2009 21:04:21 / særún

49 dagar til jóla

og ég er sko farin að hlakka til... enda frábær tími framundan og nú nýt ég þess að vera ekki í skóla og eiga allan frítíma í endalaust dútl. Er byrjuð á jólakortunum og þó þau séu einföld í ár er alltaf gaman að dunda í þessu. Ég er líka að prjóna og sauma út svo ég get eytt töluvert mörgum stundum í dund heima hjá mér. Samt finnst mér stundum nóg komið.  Annars er ekkert mikið um að vera, það er nóg að gera í vinnunni, kórinn gengur af vana og þar eru löngu komin jól. Mér finnst nú ekki spennandi að eiga að syngja með Kristjáni Jóhannssyni og öfunda Kvennakórinn sem er með miklu flottari og betri söngvara með sér núna. Ég ætla pottþétt á tónleika hjá þeim og þá er það Stefán Hilmarsson sem trekkir. Reikna með að fara líka á Karlakór Reykjavíkur en þá koma sko jólin. Eins og ég sagði er ekki mikið um að vera, við Gerður ætlum að reyna að komast í smá kertagerð því við höfum fengið smá pantanir en annars er ekki mikill tími til að gera neitt af viti. Við Inga kíkjum í leikhús öðru hvoru og förum að sjá Fjölskylduna núna í nóvember. Hlakka mikið til því verkið hefur fengið frekar góða dóma og ég hef heyrt frábærar sögur frá þeim sem eru búnir að sjá þetta. Á morgun og laugardag ætla ég að vera á ráðstefnu, það er alltaf gaman að fara út og heyra af einhverju nýju og spennandi en það er ekki tilhlökkunarefni að eyða laugardeginum í ráðstefnu. Þessa dagana finnst mér bara ekkert veita af allri helginni til að safna orku og hvíla sig eftir vinnuvikuna og undirbúa sig fyrir næstu. En það verður örugglega gaman þegar komið er á staðinn.

Jæja best að fara að prjóna, er algjörlega dottin í þá bakteríu...

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.10.2009 21:28:31 / særún

enn ein dagbókarfærslan

þetta er náttúrlega ekkert annað hér, hef sko ekkert að segja enda er ekkert um að vera þessa dagana, eða þannig, auðvitað fellur eitt og annað til en engir stórviðburðir. Um síðustu helgi fórum við vinkonurnar í sumarbústað en því miður hafði veðrið áhrif á helgina. Jóna Lind komst bara alls ekki suður og við hálfbiðum eftir henni allan daginn. svo það voru mikil vonbrigði, við skipulögðum þessa helgi í lok júní og höfum ekki hist í 7 ár svo tilhlökkunin var þó nokkuð mikil. En við höfðum það gott, fórum í pottinn, í göngutúra, smurðum okkur með fegrunarsmyrslum og prjónuðum og saumuðum og auðvitað borðuðum við góðan mat alla helgina. Ég bakaði mín snilldarbrauð og það var því brauð og ostahlaðborð í hádeginu, kaka í kaffinu og auðvitað grilluðum við kvöldmatinn. Helgin var því stórgóð og vonandi verður bara stutt í að við endurtökum hittinginn og vonum þá að veðrið hafi ekki svona mikil áhrif.
Völvuklúbburinn átti líka skemmtilegan dag saman um daginn þegar við skruppum á Selfoss og hittum völvuna þar, fórum í skemmtilegan göngutúr í dásamlegu veðri, kíktum í heita pottinn í sundlauginni og fengum okkur svo súpu og marengs á Stokkseyri. Eftir þennan dag var ákveðið að gera þetta að árlegum viðburði. Ég og Inga erum líka duglegar að fara í leikhús þennan veturinn, um daginn fórum við á Heima er best sem ég get nú varla mælt með en var þó ekki eins klikkað og í fyrstu sýndist. Um næstu helgi er löng æfing á sunnudaginn en nú erum  við komnar á kaf í jólalögin enda ekki nema 72 dagar til jóla svo það er ekki vanþörf á að æfa vel dagskránna sem er full af nýjum og fallegum jólalögum.
Nú er lopapeysan langt komin svo ég er farin að hugsa um hvað ég get prjónað næst. Langar að prjóna meira en veit ekki hvað það ætti að vera. Það hlýtur eitthvað að koma í hugann næstu daga.

» 4 hafa sagt sína skoðun

25.09.2009 23:08:10 / særún

jæja já...

...ég sjálf er farin að gleyma þessari síðu dögum saman, enda er svo sem enginn sem les þetta. Það er allt gott að frétta héðan, nóg að gera í vinnunni enda haustið sérlega annasamur tími í skólanum. Vinnan mín er komin í góða rútínu og vikan vel uppbyggð hjá mér. Er sem betur fer komin af stað í ræktinni og í kórnum en annað er lítið um að vera. Mér finnst samt voða gott að vera ekki í skóla og nýt þess að gera ekki neitt á kvöldin, gæti samt alveg hugsað mér að finna mér eitthvað spennandi verkefni til að grúska í en veit ekki hvað það ætti að vera.
Framundan er heilmikið um að vera í félagslífinu, á morgun er tónleikaferð á Suðurnesin þar sem við syngjum sjómannskonuprógrammið okkar í Grindavíkurkirkju, næsta laugardag förum við Inga í leikhúsið og á sunnudaginn er dekurferð Völvuklúbbsins á Selfoss. Hápunktur haustsins er helgina þar á eftir þegar fimm fagrar magrar fara saman í sumarbústað og ætla að hafa það hrikalega gott saman. Það verður algjör snilld.

Sem betur fer er nóg að hlakka til...


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.09.2009 22:22:32 / særún

Haustið skellur á...

svo sannarlega er komið haust, myrkrið á kvöldin, svala loftið á morgnana, kórinn byrjaður og allt á fullu í vinnunni. Já það er nóg að gera á öllum vígstöðvum... sem betur fer. Dreif mig loksins í ræktina í gær... og aftur í dag, vá þvílíkur dugnaður! Þar sem Didda er í veikindafríi þarf ég að finna mér nýja tíma og venjast nýjum kennurum. Ég er ekkert of hress með það því ég nenni ekki að vera í of miklum hávaða og alls ekki að láta kennarana öskra á mig, oj bara. Við Rakel frænka fórum í fínan tíma í dag og reikna með að fara í hann aftur. Svakalega er þetta samt leiðinlegt, ég nenni þessu ekki en það er ekkert annað í boði, ég ætla ekki að stækka meira, nóg er nú komið.
Í vinnunni gengur allt sinn vanagang. Ég er farin  að fara út með hópa í útikennslu og er bara mjög spennt yfir því. Ég er svo heppin að fá Gróu vinkonu mína með mér í það á annarri deildinni og það finnst mér voða gaman. Hinar eru líka jákvæðar en ég á nú ekki von á að fleiri verði æstir í það þegar fer að kólna og dimma. En það er aðaltæknin við útikennsluna að láta hana ekki falla niður vegna veðurs heldur fara út og herða sig í vonda veðrinu. Við búum nú einu sinni á Íslandi.
Kórinn byrjaði líka í vikunni, fyrst um sinn æfum við prógrammið síðan í vor en í lok september verðum við með tónleika í Grindavík þar sem við ætlum að endurtaka tónleikana síðan í vor. Það verður gaman að syngja það aftur. Eftir það fáum við nýtt prógramm. Ég kvíði því að fá nýtt prógramm því þetta er svo að mínu skapi að ég veit ekki hvort ég get sungið eitthvað nýtt. Langar bara að vera í kór sem sérhæfir sig í þessari tónlist. hehehe...

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.08.2009 20:01:18 / særún

fríið búið... :(

æi já það tekur víst allt enda. Ég er búin að hafa það svakalega gott í fríinu, ferðaðist heilmikið fyrstu tvær vikurnar og seinni tvær vikurnar fóru mest í afslöppun og skemmtilegheit í borginni og veðurblíðan með eindæmum allan tímann. Nú er vinnan tekin við, í síðustu viku var einstaklega rólegt, fjórir starfsmenn með 13 - 16 börn alla vikuna. Fórum í Fjölskyldugarðinn einn daginn og grilluðum hádegismatinn þar en höfðum það líka huggulegt  í skólanum og nutum rólegheitanna. Aðeins fleiri eru mættir núna en samt fer þetta rólega af stað. Ég er aðeins farin að huga að vetrinum en nú stefni ég á útikennslu með elstu börnunum og það finnst mér spennandi.
Satt að segja finnst mér svolítið skrýtið að vera ekki að fara í skóla enda hef ég verið í skólanum sl tvo vetur. Ég er samt afar sátt við þá ákvörðun að taka mér frí, er aðeins að spá í hvað ég geri í mínum enskumálum. Hvort ég ætti að drífa mig í einhverja tíma eða hvort ég get gert eitthvað sjálf. Kórinn byrjar strax í byrjun september og haustið byrjar með smáferðalagi í lok september þar sem ég reikna með að sjómannskonuprógrammið verður endurtekið. Fimm fagrar magrar stefna á sumarbústaðaferð í byrjun október enda eru 20 ár nú í haust síðan við settumst á skólabekk í Fósturskólanum... ótrúlegt!!!! Týra stefnir á kertagerð og svo er aldrei að vita nema maður vinni í Mólý einn og einn seinnipart eða jafnvel einstaka laugardag með haustinu.... það væri nú bara gaman. En fyrst klárast nú sumarið vonandi með góðu veðri og hlýindum

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 28